janúar 15, 2007

the future so bright, I gotta wear boots



jæja ... þá er nýja árið að skríða í gang. fyrsta vikan leið í einhverju móki og það er best að vera ekkert að rifja upp hvernig á því stóð. og nú er maður bara eldhress og tilbúin að hlaupa eldhress í nýtt ár. búin að koma bensínskrímslinu aftur í geymslu og nú fer maður að labba allt ... nema nú er bara snjór útum allt og maður kann ekkert að labba lengur í snjósköflum. við erum búin að lifa svo miklu luxus tropical tundra lífi hérna á suður-íslands slóðum (aka slabb og pollar) að maður kann ekki lengur að labba í almennum sjnó. en hvað er maður að kvarta. áfram með smjörið ... og núna þarf maður bara að passa sig á því að detta ekki yfir litla sleða um helgar.